Krýsuvíkurnefnd Sörla

- menn með of mikinn frítíma

Hlið læst

Öll hlið á svæðinu okkar eru núna læst. Ef þú þarft að sækja hrossin þín eða einhverra hluta vegna að opna hliðin þá vinsamlegast hafðu samband við formanninn. Sjá síman hér til hægri.

Krýsuvíkurreið og smölun

Núna um helgina - 24.-25. júlí verða hestarnir í sveltigerðinu inní Hvömmum. Reikna má með að þeir verði þar til um fjögur á sunnudag.

Annars er það helst að það verður dágóður hópur sem ætlar sér að ríða uppeftir í Krýsuvík úr hesthúsahverfinu okkar í Sörla. Áhugasamir setji sig í samband við formanninn - sjá símanúmer hér til hægri.

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

Smölun og Ketilstígur

laugardagur 16.júlí. Búið er að smala hrossunum í sveltigerðið við Hvammana og verða þeir þar fram á seinnihluta sunnudags - ca. 16:00.

Grindvíkingarnir höfðu við okkur samband og sögðust ætla að ríða loksins inná Vigdísarvelli. Við stefnum á að fara úr Krýsuvíkinni nokkrir, ríða Ketilstíginn (einnoghálfur tími) og hitta þessar hetjur. Riðið til baka síðan á morgunn, sunnudag 17.júlí.

Lagt er af stað frá Hvömmunum um klukkan eitt á morgunn, laugardag. Nánari upplýsingar veita Gunnar Örn (892 8245) og Jón Ágúst (863-9694).

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

Hrossunum smalað

Hrossunum var smalað í dag laugardag (10.júlí) og verða í sveltigerðinu eða nátthaganum við hnakkageymslurnar fram til klukkan 16:00 á morgunn sunnudag (11.júlí).

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

Óþekkt hross í Krýsuvík (2.júní)

Bleikálóttur hestur (sjá mynd) var skilinn eftir í nátthaganum í Krýsuvík í gær. Hesturinn er ómerktur. Eigandi er vinsamlegast beðinn um að gera grein fyrir hrossi sínu og hafi samband við Gunnar Örn Ólafsson, formann Krýsuvíkurnefndar í síma 892-8245.

Ef ekki er gerð grein fyrir hrossinu þá verður það keyrt í bæinn næsta kvöld (4.júní) og hýst og fóðrað á kostnað eiganda.

Krýsuvíkurnefnd

Uppselt (1.júní)

Fullskipað er nú á svæðið. Lokað hefur verið fyrir nýskráningar.

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

Opnun í Krýsuvík 1.júní

Kort af Krýsuvík / Map of KrýsuvíkÞá er formlega opið í hagabeitina í Krýsuvík (1.júní). Í ljósi aðstæðna þá mun Krýsuvíkin opna í þetta skiptið tveimur vikum fyrr en venjulega. Ástæðan er kvefpestin sem nú þegar er orðin landlæg.

Hún ágerist ef hestum er haldið lengur á húsi og hollast er fyrir hrossin að komast í hreint og ósmitað umhverfi þ.e. í sumarhagan.

Við munum byrja á að beita á svokallað Fjósmýrarhólf. Það þýðir að fólk sleppir í gegnum hlið merkt Sörli 1 sem er annað af tveimur hliðum við þjóðveginn og það hlið sem er lengra í burtu frá Hafnarfirði (sjá kort). Ekið er sem leið liggur framhjá Sörli 2 hliðinu, framhjá nýja aðhaldinu og þar skammt frá er Sörli 1 hliðið.

MUNA AÐ RAKA MERKIÐ YKKAR Í HROSSIN SVO AÐ PULSUSALINN FÁI ÞAU EKKI. EF ÞIÐ ERUÐ EKKI SKRÁÐ EÐA VITIÐ EKKI HVAÐ MERKIÐ YKKAR ER ÞÁ VINSAMLEGAST SETJIÐ YKKUR Í SAMBAND.

Örfá pláss eru eftir í hagabeitina ef menn hafa áhuga á að skrá sig.

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

Skráning hafin í Hagabeit

Nú er opið fyrir skráningu í hagabeit í Krýsuvík fyrir sumarið og haustið 2010. Hagabeitin sjálf opnar síðan 15.júní n.k.

Umsóknir berist á netfang Krýsuvíkurnefndar Sörla:

krysuvikurnefnd@gmail.com

Hagabeitargjaldið er 2.000 kr. fyrir hross á mánuði.

Aðeins skuldlausir félagsmenn í Sörla geta sent hross sín hagann í Krýsuvík.

Hagabeitartímabilið er frá 15.júní til 15.desember.

Allar frekari upplýsingar veita nefndarmenn (sjá hér til hægri).

Hagabeitarkilmálar

Hestamannafélagið Sörli áskilur sér allan rétt til að breyta tímabili hagabeitarinnar vegna ófyrirsjáanlegra orsaka svo sem veðurfars eða beitarþols svæðisins.

Hestamannafélagið Sörli ber ekki ábyrgð að neinu leiti á hrossum sem eru í hagabeit í Krýsuvik.

f.h. Krýsuvíkurnefndar
Jón Ágúst

 

Myndir júlí 2010

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

Myndir 26.nóvember 2009

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

Myndir 19.nóvember 2009

Sæktu Flash spilara til að sjá þessar fínu myndir.

*hægt er að stækka myndirnar upp með því að færa músarbendilin yfir myndina og þrykkja á takkan sem þá birtist sem er lengst til hægri.

Svo má nota vinstri og hægri örvatakkan á lykklaborðinu þínu til að skipta á milli mynda og space-takkan (þessi langi) til að stöðva.

 

Krýsuvíkurnefnd Sörla 2010

Ef menn vilja afslátt af hagabeitinni og hjálpa til í staðinn í Krýsuvík þá endilega látið í ykkur heyra.

Netföng nefndarinnar eru:
krysuvikurnefnd@gmail.com & krysuvikurnefnd@sorli.is

Hérna má finna Kort af svæðinu.